Starfsmaður Íslenska gámafélagsins urðaði asbestið sem fannst grafið undir malarplani á iðnaðarsvæði á Akureyri í stað þess að flytja það á lögbundinn urðunarstað. Með þessu ætlaði starfsmaðurinn að stytta sér leið í kerfinu.
Í tilkynningu sem forstjóri Íslenska gámafélagsins sendi frá sér í gær kemur fram að asbestúrgangurinn hafi fundist nálægt starfsstöð fyrirtækisins að Réttarhvammi á Akureyri. Strax hafi verið farið af stað vinna innan fyrirtækisins til að ganga úr skugga um hvort verið gæti að úrgangurinn kæmi frá Íslenska gámafélaginu. Fyrr í vikunni hafi komið í ljós að svo var en starfsmaður Íslenska gámafélagsins hafði í september freistast til þess að stytta sér leið í ferlakerfi fyrirtækisins sem endaði á þennan skelfilega hátt með urðun úrgangsins, segir í tilkynningu.
Jón Þórir Frantzson, forstjóri Íslenska gámafélagsins segir að því hafi verið um mannleg mistök að ræða hjá starfsmanni sem hafi starfað hjá fyrirtækinu í sjö ár án þess að nokkurn skugga hafi borið þar á.
Vegna þessa er verið að fara yfir alla vinnuferla er varða meðhöndlun á hættulegum úrgangi og ítrekað við alla starfsmenn að ávallt skuli fylgt ströngustu reglum við meðferð slíkra efna.
„Fyrir hönd fyrirtækisins biðst ég innilegrar afsökunar á þessum verknaði og lofa því að gera allt sem í okkar valdi stendur til að koma í veg fyrir að slíkt geti komið fyrir aftur,“ segir Jón Þórir Frantzson, í tilkynningu.
Sagt upp störfum tímabundið
Hann segir í samtali við mbl.is að starfsmanninum hafi verið vikið frá störfum á mánudagskvöldið þegar í ljós kom hvað hafi gerst. Ekki sé búið að taka ákvörðun um framhaldið.
Að sögn Jóns var mikið álag á starfmanninum á þessum tíma. „Það sköpuðust sérstakar aðstæður á þessum tíma, mikið vinnuálag og veikindi á þessum tíma. Hann var einn að sjá um mjög stórt svæði og það vantaði gám í leigu. Hann tæmdi því þennan gám til þess að geta leigt hann út. Það er skýringin en ákvörðunin er tekin algjörlega á skjön við reglur fyrirtækisins,“ segir Jón.
Mjög skýrt er kveðið á um það í lögum og reglugerð hvernig standa á að förgun asbest. Jón Þórir segir að ábyrgðin á starfsmanninum og gjörðum hans hvíli á fyrirtækinu og ljóst að þetta mun hafa mjög slæm áhrif á ímynd þess. Hann segir að það sé ljóst að ekkert þessu líkt muni nokkurn tíma koma fyrir aftur hjá neinum starfsmanni Íslenska gámafélagsins.