Lúmsk hálka með kólnandi veðri

Eftir að lægt hefur um landið vestanvert hefur kólnað og nú yfir daginn myndast víða
lúmsk hálka þegar blautir vegirnir frjósa. Ekki síst á þetta við um uppsveitir
Suðurlands, Borgarfjörð og þjóðveginn um Holtavörðuheiði og Húnavatnssýslur, segir í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Vegir eru að heita má auðir á Suður- og Vesturlandi en hálkublettir eru þó á Holtavörðuheiði og á Bröttubrekku.

Á Vestfjörðum er mikið autt á láglendi en víða hálkublettir á fjallvegum. Flughálka er á Kleifaheiði. 

Norðvestanlands eru vegir að mestu greiðfærir en krap og þoka á Vatnsskarði og hálkublettir á Öxnadalsheiði. Norðaustanlands eru hálkublettir á örfáum leiðum en á Austurlandi eru vegir auðir. Óveður er á Vatnsskarði eystra

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert