Forsætisráðherra hefur friðlýst sal skemmtistaðarins Nasa við Austurvöll, sem er einnig þekkt sem gamla Sjálfstæðishúsið. Er þetta gert að tillögu Minjastofnunar.
Í tillögunni segir, að friðlýsing taki til innviða, rýmisskipunar og varðveittra hluta af upprunalegum innréttingum í sal gamla Sjálfstæðishússins í bakálmu friðlýsts húss við Thorvaldsenstræti 2.
Þar var skemmtistaðurinn Nasa til húsa frá árinu 2001 til 2012.
Mennta- og menningarmálaráðherra friðaði húsið árið 2011. Friðun nær til ytra byrðis framhússins við Thorvaldsensstræti sem byggt var árið 1878.
Málið er nú til skoðunar hjá Reykjavíkurborg í tengslum við fyrirhugaða uppbyggingu á svæðinu.