Þriðjungur eingöngu með grunnmenntun

Nýstúdentarnir setja upp húfurnar.
Nýstúdentarnir setja upp húfurnar. mbl.is/Ómar

Tæplega 28% þjóðarinnar á aldrinum 25-64 ára er eingöngu með grunnmenntun og mikill munur er á menntun fólks á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni. Þetta er meðal þess sem kemur fram í samantekt Hagstofu Íslands fyrir árið 2013.

Árið 2013 höfðu 45.400 manns á aldrinum 25-64 ára eingöngu lokið grunnmenntun, þ.e. styttra námi en framhaldsskólastigi, samkvæmt  niðurstöðum úr Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands. Það eru 27,8% íbúa og hefur fækkað úr 34,4% árið 2003. Þegar litið er á fjöldatölur hefur íbúum með grunnmenntun fækkað um 3.800 frá árinu 2003 og um 1.700 frá árinu 2012.

42,3% íbúa á höfuðborgarsvæðinu með háskólamenntun en 24,7% íbúa lá landsbyggðinni

Þá höfðu 36,1% íbúa mest lokið starfs- og framhaldsmenntun, þ.e. lokið námi á framhaldsskólastigi sem er a.m.k. tvö ár að lengd eða lokið námi á viðbótarstigi, eða 58.900 manns. Álíka margir, 58.700 manns, höfðu lokið háskólanámi; 36,0% íbúa á Íslandi á þessu aldursbili. Háskólamenntuðum hefur fjölgað um 19.400 frá árinu 2003, þegar þeir voru 27,5% íbúa.

Mikill munur var á menntun íbúa höfuðborgarsvæðisins og landsbyggðarinnar árið 2013. Á höfuðborgarsvæðinu höfðu 22,7% íbúa á aldrinum 25-64 ára eingöngu lokið grunnmenntun en 42,3% höfðu lokið háskólamenntun. Utan höfuðborgarsvæðisins höfðu 37,0% íbúa eingöngu lokið grunnmenntun og 24,7% lokið háskólamenntun.

Yngra fólk er hefur almennt lokið meiri menntun en þeir sem eldri eru. Í aldurshópnum 30-49 ára höfðu 23,7% eingöngu lokið grunnmenntun og 41,4% lokið háskólamenntun árið 2013. Í aldurshópnum 65-74 ára höfðu hins vegar 45,3% eingöngu lokið grunnmenntun og 18,9% lokið háskólamenntun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert