Atvinnulausir fá desemberuppbót

Vinnumálastofnun
Vinnumálastofnun mbl.is/Ómar Óskarsson

Vinnumálastofnun mun greiða út desemberuppbót til atvinnuleitenda þann 5. desember í samræmi við reglugerð sem félags- og húsnæðismálaráðherra hefur gefið út. Full desemberuppbót er 53.647 krónur en greiðsla til hvers og eins reiknast í hlutfalli við rétt hans til atvinnuleysisbóta á árinu.

Rétt á desemberuppbót eiga þeir atvinnuleitendur sem tryggðir eru innan atvinnuleysistryggingakerfisins og hafa staðfest atvinnuleit á tímabilinu 20. nóvember – 3. desember, samkvæmt tilkynningu.

Skilyrði og útreikningur á rétti til greiðslunnar verður með sama hætti og undanfarin ár. Full desemberuppbót er 53.647.- krónur en greiðsla til hvers og eins reiknast í hlutfalli við rétt hans til atvinnuleysisbóta á árinu. Tekið er mið af bótahlutfalli og fjölda mánaða á atvinnuleysisbótum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert