„Allt kerfið er búið að vera að vinna út frá því að Hornafjörður tilheyri umdæmi lögreglustjórans á Suðurlandi. Þá er ég að tala um allt frá starfsmönnum á lögreglustöðinni, nýjum lögreglustjórum og Alþingi,“ segir þingkonan Unnur Brá Konráðsdóttir um þá ákvörðun dómsmálaráðherra að sveitarfélagið Hornafjörður skuli tilheyra umdæmi lögreglustjórans á Austurlandi í stað Suðurlands eins og áður hafði verið ákveðið.
Í samtali við mbl.is í gær sagði Gunnar Þorgeirsson, formaður Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, að ákvörðunin hefði komið á óvart þar sem Hornafjörður heyrir undir Suðurkjördæmi. Segir hann jafnframt að samhugur hafi verið um að starfsemi ríkisins á Suðurlandi, hvort sem hún snýr að löggæslu, heilsugæslu eða öðru, myndi fylgja kjördæminu.
„Það var gert ráð fyrir því í fjárveitingum að lögreglan á Suðurlandi sæi um Hornafjörð,“ segir Unnur. „En mikilvægast í þessu öllu er vilji þeirra sem ætla að þiggja þjónustuna, það er Hornfirðinga sjálfa, og það hefur skýrt komið fram að þeir vilja vera Suðurlandsmegin. Það er það sem skiptir máli.“
Segir ákvörðunina ekki hafa legið fyrir