Adrian Staszczuk, 28 ára gamall Pólverji, sem býr í iðnaðarhúsnæði við Nýbýlaveg 4 segist borga 65 þúsund krónur á mánuði fyrir herbergið sem hann býr í. Húsnæðið sem slökkviliðið ætlaði að rýma í gær er gamalt skrifstofuhúsnæði með sameiginlegu eldhúsi, salernis- og baðaðstöðu.
Eigendur fengu frest til fimmtudags til að bregðast við kröfum slökkviliðsins um umbætur á brunavörnum í húsnæðinu og var maður á vegum Securitas að setja upp reykskynjara þegar mbl.is bar að garði í dag.
Bjarni Kjartansson, sviðsstjóri forvarnarsviðs slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu, segir að þrátt fyrir allt hafi húsnæðið á Nýbýlaveginum verið með snyrtilegri slíkum stöðum sem hann hafi séð.
Ég ræddi við Adrian sem er með gráðu í félagsfræði og er nú í Mími til þess að geta fengið réttindi til að vinna á leikskóla.