Á fljúgandi ferð í Borgartúninu

Hjólið tókst á loft.
Hjólið tókst á loft. mbl.is/Golli

Fæstum dylst að veðrið á höfuðborgarsvæðinu er ekki upp á marga fiska þessa stundina. Þessi hjólreiðamaður lét varnaðarorð viðbragðsaðila sem vind um eyru þjóta og gerði atlögu að Borgartúninu á reiðhjóli. Ljósmyndari mbl.is myndaði manninn þegar hann barðist við hjólið í vindinum. Að lokum tókst honum þó að koma sér, og hjólinu, í var og festa það.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert