Raunhæft er að stjórnvöld geti kynnt áætlun um afnám fjármagnshafta „snemma á næsta ári“.
Þetta segir Lee Buchheit, einn helsti ráðgjafi stjórnvalda við vinnu um losun hafta, í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.
Bjarni Benediktsson segir stjórnvöld aldrei hafa verið jafnnærri því að tefla fram fullbúnum hugmyndum til að kynna áætlun um afnám hafta.