Hávaðarok, skafrenningur, slæmt skyggni og ísing hefur gert aðstæður á Reykjanesbrautinni mjög varasamar í dag. Augljóst var að sumir bílar áttu erfitt með festa grip á veginum í morgun, nokkrir bílar fóru útaf og einn valt skammt frá Grindavíkurafleggjaranum.
mbl.is var á staðnum í morgun og það er því óhætt að taka undir orð lögreglunnar á Suðurnesjum sem hefur hvatt fólk til að forðast að fara um brautina að óþörfu.