Gengu í kringum tréð í Gamla bíói

Frá Gamla bíói í dag.
Frá Gamla bíói í dag. mbl.is/Árni Sæberg

Börn og fullorðnir gengu í kringum jólatréð í Gamla bíói í dag. Líkt og venjan er á jólaböllum leit jólasveininn við í heimsókn en það var Stúfur sem kom til byggða í nótt. 

Gamla bíó hýsti áður Íslensku óperuna en undanfarna mánuði hafa umfangsmiklar breytingar verið gerðar á húsnæðinu. 

Árni Sæberg, ljósmyndari mbl.is og Morgunblaðsins, leit við í Gamla bíói í dag og má sjá afraksturinn í myndasyrpu sem fylgir fréttinni. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert