Vínbúð var opnuð á Kópaskeri 10. desember. Búðin er á Bakkagötu 10 og er inn af versluninni Skerjakollu – Búðinni á Skerinu.
Í Morgunblaðinu í dag segir Erla að ekki væri hægt að segja að viðskiptin hefðu verið mikil fyrstu vikuna. „Það er búið að vera kolvitlaust veður síðan búðin var opnuð. Fólk er ekki mikið á ferðinni.“
Búðin á Kópaskeri er opin kl. 17-18 mánudag til fimmtudag en kl. 14-18 á föstudögum.