Starfsmönnum býðst frí ristilspeglun

Síldarvinnslan í Neskaupsstað. Starfsmönnum gefst nú kostur á ristilspeglun þeim …
Síldarvinnslan í Neskaupsstað. Starfsmönnum gefst nú kostur á ristilspeglun þeim að kostnaðarlausu. Steinunn Ásmundsdóttir

Starfsmönnum Síldarvinnslunnar sem náð hafa 50 ára aldri gefst nú kostur á ristilspeglun þeim að kostnaðarlausu á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað. Undirritaður var samningur um efnið á milli fyrirtækisins og Heilbrigðisstofnunar Austurlands.

Síldarvinnslan mun greiða allan kostnað vegna speglananna og að auki færa sjúkrahúsinu að gjöf nýtt speglunartæki að verðmæti 3 milljónir króna. Mun nýja tækið gera sjúkrahúsinu betur kleift en áður til að sinna almennri þjónustu á þessu sviði að því er segir í tilkynningu frá Síldarvinnslunni.

Ristilkrabbamein er þriðja algengasta krabbamein á Íslandi  og segir í tilkynningu að afar mikilvægt sé að efla forvarnir gegn þessum skæða vágesti.

Umræddur samningur er viðbót við samning um heilsufarsskoðun starfsmanna Síldarvinnslunnar sem verið hefur í gildi frá árinu 2010. Samkvæmt þeim samningi sér Fjórðungssjúkrahúsið um að boða starfsmenn fyrirtækisins til almennrar heilsufarsskoðunar þriðja hvert ár en þeir starfsmenn sem náð hafa 60 ára aldri eða eru í skilgreindum áhættuhópi eru kallaðir til skoðunar árlega.

Starfsfólkið er helsta auðlindin

Það voru þeir Valdimar O. Hermannsson rekstrarstjóri Fjórðungssjúkrahússins og Gunnþór Ingvason framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar sem undirrituðu samninginn fyrr í dag. „Þessi samningur um ristilspeglanir er viðbót við fyrri samning um heilsufarsskoðanir starfsmanna Síldarvinnslunnar og nýr áfangi á þeirri leið að efla forvarnir á sviði heilbrigðismála. Ég tel að fyrirtæki eins og okkar eigi að leggja mikla áherslu á öryggismál og heilsu starfsfólksins því ekkert fer á milli mála að starfsfólkið er helsta auðlind þess,“ er haft eftir Gunnþóri í fréttatilkynningu. 

„Heilsa og öryggi skiptir okkur öllu máli. Þá er einkar ánægjulegt að með því að styrkja sjúkrahúsið með gjöfum á tækjabúnaði er möguleiki til að efla forvarnir gegn krabbameini öllum Austfirðingum til heilla. Við eigum að sameinast um að efla heilbrigðisþjónustuna og hyggja að bættri heilsu allra. Umræðu um auknar forvarnir þarf að taka með það að markmiði að ná enn betri árangri en hingað til,“ segir Gunnþór.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert