„Þetta er dálítið dramatíserað en það er mjög grunnt þarna,“ segir Sigurður Áss Grétarsson, forstöðumaður hafnarsviðs Vegagerðarinnar, í samtali við mbl.is.
Tilefnið er frétt Eyjafrétta í morgun um að svo grunnt sé í Landseyjahöfn um þessar mundir að engar ferjur gætu komist þar inn og þar með talið fyrirhugaður nýr Herjólfur sem rætt væri um að smíða og Víkingur sem sinnt hefur farþegaflutningum á milli Eyja og lands.
Sigurður segir að ljóst sé að engin af ferjunum komist inn á höfnina ef það er fjara eins og staðan sé í dag. Það sé rétt.
Frétt mbl.is: Landeyjahöfn of grunn fyrir Herjólf