Talsvert var um umferðaróhöpp á höfuðborgarsvæðinu síðdegis í gær og í gærkvöldi en engin slys urðu á fólki. Meðal annars var bifreið ekið á hús í fljúgandi hálku. Lítið tjón varð.
Í gærkvöldi varð umferðaróhapp í miðborginni er ölvaður maður ók aftan á aðra bifreið. Að sögn lögreglu varð lítið tjón og engin slys en mikil mildi sé að ekki fór verr. Ökumaðurinn var talsvert ölvaður og má eiga von á því að verða sviptur ökuréttindum.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu klippti númer af nokkrum bifreiðum í gærkvöldi þar sem þær voru annað hvort óskoðaðar eða ótryggðar. Í einhverjum tilvikum áttu bæði brotin við.
Lögregla segir að enn séu að berast tilkynningar um flugeldasprengingar og minnir lögregla á að um sprengiefni sé að ræða.Annað sem þarft er að hafa í huga er að þótt það sé snjór á götum og í görðum þá getur eldur borist í nálæga hluti, sér í lagi þegar verið er að sprengja í þröngum rýmum.