Strætó með fullkomnum myndavélabúnaði

Vagnarnir geta tekið 89 farþega, 35 í sæti og 64 …
Vagnarnir geta tekið 89 farþega, 35 í sæti og 64 standandi. mynd/Strætó

Strætó bs hefur fest kaup á 20 nýjum strætisvögnum sem verða tilbúnir til afhendingar á næstu dögum. Vagnarnir, sem allir eru af gerðinni IVECO Crossway LE, eru með vél samkvæmt EURO 6-staðli og menga því og eyða minni olíu en aðrir bílar hjá Strætó.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Strætó.

Þar segir ennfremur að minniháttar útlitsbreytingar hafi einnig verið gerðar á vögnunum, en í þeim eru ný og endurbætt farþegasæti, ásamt fullkomnum myndavélabúnaði sem eykur öryggi farþega og vagnstjóra. Vagnarnir geta tekið 89 farþega, 35 í sæti og 64 standandi. 

„Strætó hefur á síðustu misserum verið að endurnýja vagnaflota sinn og mun halda því verkefni áfram. Mikilvægt er að yngja flotann eins og kostur er til þess að halda rekstrarkosnaði í lágmarki ásamt því að halda í við auknar kröfur um öryggi, gæði og mengunarvarnir,“ segir í tilkynningu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert