Fjölmörgum flugferðum til og frá Keflavíkurflugvelli hefur verið frestað eða aflýst vegna veðurs á mánudag. Sex ferðum Icelandair sem áttu að leggja af stað frá Bandaríkjunum til Keflavíkur í kvöld hefur verið aflýst sem og ellefu ferðum til Evrópu í fyrramálið.
Spáð er snörpum vindhviðum, skafrenningi og slæmu skyggni á Suður- og Vesturlandi seint í kvöld og nótt. Búast má við að veðrið hafi einnig áhrif á samgöngur á vegum.
Samkvæmt facebooksíðu WOW Air mun flugfélagið fresta tveimur ferðum í fyrramálið til hádegis. Er það flug WW403 til Parísar og flug WW201 til Lundúna.
Flug Icelandair sem hefur verið aflýst frá Bandaríkjunum og Kanada kvöld:
Flug Icelandair sem hefur verið aflýst til og frá Evrópu á morgun: