Leiðréttingin hefur áhrif á fasteignamarkaðinn

Gömul hús í Hafnarfirði.
Gömul hús í Hafnarfirði. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Leiðrétting stjórnvalda á verðtryggðum húsnæðislánum hefur skapað mörgum svigrúm til að stækka við sig húsnæði.

Þetta hefur áhrif á fasteignamarkaðinn í Hafnarfirði, að sögn Eiríks Svans Sigfússonar fasteignasala. Rætt er við hann í umfjöllun um bæjarfélagið í greinaflokknum Heimsókn á höfuðborgarsvæðið í blaðinu í dag.

Meðal annars efnis er svipmynd úr hversdagslífi venjulegrar fjölskyldu á Völlunum í Hafnarfirði og rætt er um huldufólk sem býr í Hellisgerði.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert