Um 7% eru innflytjendur í Hafnarfirði

Edyta og sonurinn Dymitri Daniel Obara saman á góðri stundu.
Edyta og sonurinn Dymitri Daniel Obara saman á góðri stundu. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Um sjö prósent íbúa í Hafnarfirði eru erlendir ríkisborgarar. Þrettán prósent barna á leikskólum og tæp tíu prósent í grunnskólum bæjarins eru af erlendum uppruna.

Þetta kemur fram í lokaumfjöllun um Hafnarfjörð í greinaflokknum Heimsókn á höfuðborgarsvæðið í blaðinu í dag. Rætt er við Edytu Agnieszku Janikula sem annast þjónustu við pólskumælandi fólk á Bókasafni Hafnarfjarðar. Hún rekur einnig lítið hreingerningarfyrirtæki með manni sínum.

Að auki er sagt frá uppbyggingu á Völlunum og í Skarðshlíð, fjallað um íþróttafélagið Hauka og forvitnast um löndun í Hafnarfjarðarhöfn.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert