Kaupás, sem meðal annars rekur verslanir Krónunnar og Nóatúns, getur ekki keypt þau svið úr sláturtíðinni í haust sem fyrirtækið telur sig þurfa.
Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag segir innkaupastjóri Kaupáss það háalvarlegt að geta ekki fengið vöru sem niðurgreidd er af ríkinu.