Íbúar Mosfellsdals ætla að afhenda Bryndísi Haraldsdóttur, formanni skipulagsnefndar, mótmælabréf klukkan 12 í dag.
Tilefnið er „viðvarandi hrað- og glannakstur á Þingvallavegi í Mosfellsdal, sem skerðir lífsgæði allra í Dalnum og skapar viðvarandi hættuástand á veginum,“ segir í fréttatilkynningu.
Dalsbúar mótmæla einnig „óþarflega breiðu veghelgunarsvæði Vegagerðarinnar sem skerðir eignarétt landeigenda og takmarkar ráðstöfunarrétt þeirra yfir landi sínu.“
Dalsbúar vilja að Vegagerðin finni sér aðra stofnbraut sem fyrst til þess að taka við vaxandi umferðarþunga sem fer núna í gegnum Mosfellsdal og að þessi vegur verði gerður að sveita- og hverfisvegi og að veghelgunin verði minnkuð í 15 metra frá miðlínu vegar.