Hafist var handa við flutning tveggja húsa sem standa við Grettisgötu í miðborg Reykjavíkur um miðjan dag. Húsin voru hífð hátt yfir önnur og um tíma var sem húsin svifu yfir miðborginni. Húsin verða flutt út á Hólmaslóð og geymd þar til grunnur á framtíðarstað þeirra hefur verið gerður.
Húsin sem verða flutt af skipulagsástæðum eru Grettisgata 17 og bakhús að Laugavegi 36 og var Grettisgötu milli Frakkastígs og Klapparstígs lokað tímabundið frá hádegi í dag til að koma flutningstækjum að, en húsunum verður lyft á flutningsvagna á Grettisgötu.
Frétt mbl.is: Tvö hús flutt frá Grettisgötu