Svartur laugardagur fyrir tjáningarfrelsið

AFP

„Í dag eru allt, allt, of mörg samfélög þar sem rithöfundar, listamenn og skopmyndateiknarar eru beittir ritskoðun og ofbeldi. Norrænu PEN félögin munu halda áfram, jafnt heima sem að heiman, að berjast fyrir rétti þeirra til að tjá sig án þess að vera ofsóttir.

Þetta kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu frá PEN-félögunum á Norðurlöndum vegna árásarinnar í Kaupmannahöfn. PEN samtökin eru alþjóðasamtök rithöfunda á norðurlöndunum. 

„Skotárásin á laugardagsfundinn í Kaupmannahöfn, þar sem fólk var samankomið til þess að ræða tjáningarfrelsið andspænis guðlastinu, og sú sem í framhaldinu var framin við samkunduhús Gyðinga í borginni, eru hrollvekjandi áminning um að einnig í hinum opnu samfélögum Norðurlanda steðjar ógn að þeim grunngildum sem taka til frjálsra skoðanaskipta í veraldlegu samfélagi. Við fordæmum þessa grófu tilraun til kúgunar og hörmum mannslífin sem hún kostaði,“ segir í yfirlýsingunni.

Þá segir jafnframt að atburðirnir eigi sér stað á 25 ára afmæli dauðadóms íranska klerkaveldisins yfir bresk-indverska rithöfundinum Salman Rushdie og undirstriki að tjáningarfrelsið nær yfir landamæri og gengur þvert á menningarheima.

„Virðing fyrir tjáningarfrelsinu og hvatning til beittrar samfélagsgagnrýni í ólíkum miðlum á sér langa sögu á Norðurlöndum. Nýleg alþjóðleg úttekt setti Danmörku í efstu sæti lista yfir frjáls samfélög. Við munum ekki láta öfl umburðarleysis eyðileggja það með sínum grófu brögðum.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert