Stærstu skjálftarnir um tveir að stærð

mbl.is/Þórður

Rúmlega 10 jarðskjálftar mældust í Bárðarbungu frá því á hádegi í gær. Þeir stærstu voru um tveir að stærð. Í kvikuganginum mældust um tveir tugir jarðskjálfta og voru þeir allir minni en 1,5 að stærð.

Þrír skjálftar mældust við Öskju og Herðubreið, allir minni en 2 stig, að því er segir í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.

Rétt fyrir kl. átta í morgun mátti á vefmyndavélum sjá smá bjarma frá eldgosinu í Holuhrauni, segir ennfremur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert