Ávinningur heimila mikill

SA segja að aukinn kaupmáttur jafngildi þriggja mánaða matarútgjöldum.
SA segja að aukinn kaupmáttur jafngildi þriggja mánaða matarútgjöldum. mynd/Samtök atvinnulífsins

Samtök atvinnulífsin segja að á rúmlega einu ári hafi kaupmáttur launa aukist umtalsvert og verðbólga hrapað niður í sögulegar lægðir. Þetta sé ekki tilviljun því að þessu var stefnt við undirritun kjarasamninga í desember 2013 en árangurinn er framar vonum. 

Þá segir, að kaupmáttur launa hafi aukist um 5,7% á síðasta ári sem sé mesta hækkun á einu ári frá árinu 1998. Bent er á, að ársverðbólga hafi aðeins mælst 0,8% í lok síðasta árs. Með hóflegum launahækkunum og hagstæðum ytri skilyrðum hafi fyrirtæki almennt getað haldið verðlagi stöðugu og því hafi fólk haft úr meiru að spila.

„Ávinningur heimilanna af þróun undanfarinna mánaða er mikill. Kaupmáttur einstaklings með meðaltekjur jókst t.d. um 225 þúsund krónur eftir skatt á árinu 2013 eða um 19 þúsund krónur á mánuði. Kaupmáttur hjóna með meðaltekjur jókst um 450 þúsund krónur sem samsvarar rúmlega þriggja mánaða matarútgjöldum meðalheimilis,“ segir á vef SA.

Þá segir, að það skipti miklu fyrir heimilin að verðbólga sé lítil en þrír fjórðu skulda þeirra séu verðtryggð lán. Fyrir heimili með meðalskuldir, um 20 milljónir króna, sé ávinningur  lækkunar verðbólgu árið 2014 miðað við 2013 rúmlega hálf milljón króna. Þó hafi verðbólgan árið 2013 verið lítil í sögulegu samhengi en verði haldið áfram á sömu braut má tryggja enn betri árangur. Segja má að búið sé að aftengja verðtrygginguna um þessar mundir. Verði það ástand viðvarandi geta vextir lækkað á Íslandi sem eru allt of háir og íþyngjandi fyrir bæði fyrirtæki og heimili.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert