Endurskoðendaráð hefur lagt til við Ragnheiði Elínu Árnadóttur viðskiptaráðherra að Guðmundur Jóelsson, löggiltur endurskoðandi og félagi í Félagi löggiltra endurskoðenda í 40 ár, verði sviptur starfsleyfi.
Ástæður tillögunnar segir ráðið vera þær að Guðmundur hafi neitað að gangast undir gæðaeftirlit þar sem alþjóðlegir endurskoðunarstuðlar eru lagðir til grundvallar.
Guðmundur á hinn bóginn segir að alþjóðlegu stuðlarnir séu ekki í gildi á Íslandi þar sem þeir hvorki hafi verið þýddir á íslensku né birtir, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.