Talið er að yfir 8.000 manns hafi gert sér ferð á Austurvöll í dag til að mótmæla ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að slíta endanlega aðildarviðræðum við Evrópusambandið.
Ljósmyndari mbl.is var á svæðinu og festi fundargesti á filmu en eins og sjá má á myndunum hér að ofan voru þátttakendur á öllum aldri.
Hér að neðan má svo sjá myndband sem skipuleggjendur viðburðarins birtu á Facebook.