Samtök atvinnulífsins leggja til að grunnlaun verði hækkuð en jafnframt verði samningsbundnar álagsgreiðslur á laun lækkaðar. Þetta er meðal þess sem kemur fram í tillögum Samtaka atvinnulífsins í kjaraviðræðum sem nú standa yfir eða eru framundan.
Mikilvægt að tryggja jafnvægi milli atvinnu og fjölskyldulífs
„Álagsgreiðslur á Íslandi, á borð við greiðslur fyrir yfirvinnu og vaktavinnu, eru mun hærri hér en í nágrannalöndunum. Hátt hlutfall yfirvinnugreiðslna er kerfislægur þáttur í launakerfum á Íslandi sem að töluverðu leyti má rekja til reglna í kjarasamningum. Stuðningur launafólks hefur farið vaxandi við að dregið sé úr yfirvinnu og betri framfærslumöguleikar skapist af dagvinnulaununum einum, enda er það mikilvægt til að tryggja jafnvægi á milli atvinnu og fjölskyldulífs,“ segir í tilkynningu frá SA.
Uppstokkun launakerfa gæti orðið farvegur til að koma til móts við kröfur um betri framfærslumöguleika dagvinnulauna og styttri vinnutíma án þess að raska verðstöðugleika, segir ennfremur í tillögum atvinnurekenda.
„Slík uppstokkun krefst mikillar vinnu og gaumgæfa þarf möguleg áhrif slíkra breytinga á starfsumhverfi og samkeppnishæfni fyrirtækja í bráð og lengd. Fyrirtækin þurfa tíma til aðlögunar að breytingunum en þegar fram í sækir væri markmiðið að ný launakerfi væru ráðandi í atvinnulífinu.“
Skoða breytingar á lægstu dagvinnulaunum
Samhliða fyrrgreindum breytingum eru Samtök atvinnulífsins reiðubúin til þess að skoða sérstaklega hvernig stuðla megi að því að lægstu dagvinnulaun dugi betur til framfærslu. Forsenda þess er að samstaða takist um slíka áherslu innan verkalýðshreyfingarinnar, bæði á almennum og opinberum vinnumarkaði.
„Samtök atvinnulífsins vilja með þessu leggja sitt af mörkum til að koma í veg fyrir að sú erfiða staða sem nú er uppi í kjaraviðræðum leiði til stjórnlausra víxlhækkana launa og verðlags líkt og veruleg hætta er á að gerist ef kjaraviðræður halda áfram í þeim átakafarvegi sem þær eru í.
Það er sameiginleg ábyrgð atvinnurekenda og launþegahreyfingarinnar að halda áfram að bæta lífskjör hér á landi og standa vörð um jafnvægi í íslensku efnahagslífi. Um það markmið verðum við að sameinast. Það er forsenda áframhaldandi vaxtar kaupmáttar launa, hóflegrar verðbólgu og lækkunar vaxta,“ segir í tilkynningu frá Samtökum atvinnulífsins.