Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, boðaði róttæktar breytingar á húsnæðiskerfinu í setningaræðu sinni á landsfundi Samfylkingarinnar í dag. Hækka þarf húsaleigubætur, fjölga íbúðum til leigu og draga úr háu leiguverði.
„Mikilvægast af öllu eru húsnæðismálin. Ég boða róttækar breytinga á húsnæðiskerfinu. Við leggjum fyrir þennan fund heildstæðar úrbótatillögur. Ríkisstjórnin hefur ekkert gert í þessum málum. Dagur er byrjaður að auka framboð af leiguíbúðum í Reykjavík. En sú uppbygging mun taka mikinn tíma. Við getum ekki bara beðið. Ríkið verður að spila með,“ sagði Árni í dag.
Að mati Árna þarf að hækka húsaleigubætur, fjölga íbúðum til leigu og draga úr svimandi háu leiguverði. „Þess vegna þurfa leigutekjur af einni íbúð að vera skattfrjálsar fyrir einstaklinga, en því aðeins að leiga sé ekki yfir meðalverði,“ sagði Árni. „Við þurfum að þróa kerfi viðbótarlána til að gera ungu fólki og tekjulágum fjölskyldum kleift að kaupa sína fyrstu íbúð. Samfylkingin ætlar að tryggja öllum húsnæði á sanngjörnum kjörum.“
Í ræðu sinni sagði Árni að ríkisstjórnin sé búin að koma samskiptum við aðila vinnumarkaðarins í uppnám.
„Svar okkar verður að vera að leiða nýtt samtal við aðila vinnumarkaðarins. Norræna samfélagsmódelið hefur aftur og aftur sýnt að það getur betur glímt við bæði uppsveiflu og samdrátt en önnur kerfi. Til þessa að það virki þarf ábyrga hagstjórn, sem byggir á stöðugleika, góðum aðgangi að erlendum mörkuðum og samræmda launastefnu sem ýtir undir hagvöxt og fulla atvinnu og dregur úr launamun og tryggir að enginn verði skilinn eftir,“ sagði Árni og bætti við að það þyrfti umfangsmikil velferðarkerfi, sem byggja á afkomutryggingu og aðgengi að þjónustu sem tryggir mikla atvinnuþátttöku og hreyfanleika launafólks, ódýra menntun og heilbrigðis- og velferðarþjónustu sem fjármögnuð er með sköttum og tryggir jafnrétti í reynd. „Og það þarf vel skipulagðan vinnumarkað, sem byggir á samspili milli lagasetningar og kjarasamninga,“ sagði formaðurinn.
Lagði hann áherslu á að ekkert í þessu væri sjálfgefið og að allt byggi þetta á samspili á milli stjórnmálaflokkanna og samtaka á vinnumarkaði. „Allir þurfa að hafa næg áhrif, breidd og umboð til að leita eftir heildarlausnum og fylgja eftir þeim aðgerðum sem þörf er á,“ sagði Árni.
„Við munum setja okkur almenna efnahagsstefnu með þessi markmið að leiðarljósi og leggja hana fyrir samráðsvettvang með aðilum vinnumarkaðarins. Að því loknu eigum við að leggja hana fyrir Alþingi og byggja hagstjórnina á víðtækri stefnumörkun til nokkurra ára í senn. Þannig bindum við vissulega okkur sjálf, en við leggjum grunn að stöðugleika til lengri tíma og náum hámarks ávinningi fyrir fólkið í landinu,“ sagði Árni.
„Það er margt sem bendir til þess að samfélagið sé orðið kalt og grimmt. Að við gefum ekki fólki færi á að lifa lífinu með reisn. Hugmynd jafnaðarstefnunnar er að fólk njóti þeirra mannréttinda að geta orðið fyrir áföllum. Að þurfa ekki að glata öllu. Við viljum búa í góðu samfélagi sem skapar öllum rúm. Vandinn í hnotskurn er ófullnægjandi bótakerfi sem tryggir ekki lífeyrisþegum fullnægjandi framfærslu,“ sagði Árni að lokum.
Landsfundur Samfylkingarinnar stendur yfir í dag og á morgun á Hótel Sögu í Reykjavík. Eflaust eru margir spenntir yfir formannskjöri á milli þeirra Árna Páls Árnasonar, núverandi formanns og Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur, þingkonu. Kosning hefst kl. 17.30 en von er á niðurstöðu úr formannskjörinu um klukkan 19.00 í kvöld.
Í framboðsræðu sinni fyrr í dag sagði Sigríður Ingibjörg að Samfylkingin væri ekki að ná eyrum kjósenda og að það þurfi að taka áherslur og málflutning flokksins til endurskoðunar.
„Við erum ekki að ná eyrum kjósenda, þrátt fyrir að við völd sé óvinsæl og ósvífin hægristjórn. Áherslur flokksins og málflutning þarf því að taka til endurskoðunar. Samfylkingin á ekki að vera flokkur verðtryggingar og banka í hugum fólks, eða staðnaður kerfisflokkur sem skilur ekki áhyggjur venjulegs fólks. Við vitum að við erum ekki slíkur flokkur en við verðum að tryggja að almenningur viti það líka,“ sagði þingkonan í dag.