Eftir því sem lengur er beðið með viðhald vega, þeim mun kostnaðarsamari verður aðgerðin.
Þetta er á meðal þess sem fram kom á fundi umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis í gær um ástand gatnakerfisins.
Vegna niðurskurðar hefur gatnakerfinu ekki verið haldið við sem skyldi síðustu árin og nú stefnir í rándýra framkvæmd sem þegar hafa verið lagðar tæpar 900 milljónir í.