Maður var handtekinn í Hafnarfirði í gærkvöldi eftir að hafa brotið þrjár rúður við lögreglustöð bæjarins. Í tilkynningu lögreglu kemur fram að maðurinn hafi verið ósáttur við að enginn svaraði er hann barði á dyrnar. Voru lögreglumenn úti að sinna verkefnum. Var maðurinn sem sem var í annarlegu ástandi handtekinn skömmu síðar og vistaður í fangageymslu fyrir rannsókn máls.
Rétt rúmlega sex í gærkvöldi var bifreið stöðvuð í Breiðholti en er ökumaður grunaður um akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna.
Stuttu fyrir hálf ellefu í gærkvöldi var lögreglu tilkynnt um eld í bifreið við heimili í Mosfellsbæ. Var maður handtekinn grunaður um íkveikju og vistaður í fangageymslu.