Steypireyður á Skjálfandaflóa

Steypireyður heilsaði upp á áhöfn og farþega á hvalaskoðunarbátnum Náttfara á Skjálfandaflóa klukkan 11 í morgun, en báturinn er gerður út af Norðursiglingu á Húsavík. Már Eyfjörð Höskuldsson, skipstjóri á Náttfara taldi skepnuna vera í æti.

„Skjálfandi er einn af fáum stöðum á Íslandi þar sem þessi stærstu dýr jarðar koma reglulega við á leið sinni í fæðuöflun á norðurslóðum yfir sumartímann. Þrátt fyrir að steypireyður sé ekki algeng sjón þá hafa nokkur dýr vanið komur sýnar á Skjálfanda snemma á vorin undanfarin ár. Segja má því að steypireyðurin sé nokkurs konar lóa Húsvíkinga, þó töluverður munur sé á stærð og þyngd, enda getur fullvaxin steypireyður verið um 30 m á lengd og hátt í 200 tonn,“ segir í tilkynningu frá Norðursigling

Hvalaskoðun hófst þann 15. mars hjá Norðursiglingu og hefur tímabilið farið vel af stað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert