Þór og Haukur á leið til hafnar

Varðskipið Þór er nú með flutningaskipiið Hauk í togi áleiðis til Hafnarfjarðar en skipið var stjórnvana um fimm sjómílur suður af Dyrhólaey. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.

Þór var kominn að flutningaskipinu upp úr klukkan 13 í dag og hófst þá vinna við að koma línu milli skipanna. Aðgerðir gengu vel og var varðskipið komið með Hauk í tog upp úr kl. 14. Varðskipir siglir nú með Hauk í togi áleiðis til Hafnarfjarðar og er áætluð koma þangað um hádegi á morgun.

„Flutningaskipið Haukur missti stjórnhæfni á miðvikudag út af Hornafirði og var Lóðsinn frá Vestmannaeyjum sendur austur til að draga Hauk til Hafnarfjarðar. Vegna slæms veðurs og sjólags hefur ferðin gengið illa og var því óskað eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar við að draga Hauk til hafnar,“ segir í tilkynningunni frá Gæslunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert