Tveir bílar rákust saman á Reykjanesbraut um tvöleytið í dag. Þrír voru í bílunum og sluppu allir ómeiddir. Umferðaróhappið varð rétt vestan við álverið í Straumsvík.
Þá var slökkvilið kallað út að Austurbergi eftir hádegi í dag þar sem eldur hafði komið upp í blaðagámi.