Áhrif verkfalla aðildarfélaga Bandalags háskólamanna verða víðtæk og mun gæta þeirra í mestallri starfsemi Landspítalans. Fresta þarf meginþorra skipulagðra skurðaðgerða og sérhæfðra meðferða, til dæmis hjartaþræðingum, og má búast við að skipulagðir keisaraskurðir verði færðir til.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Landspítalanum.
Á morgun, þriðjudag, hefst ótímabundið verkfall Félags geislafræðinga, Félags íslenskra náttúrufræðinga, Félags lífeindafræðinga og Ljósmæðrafélags Íslands. Um fimm hundruð starfsmenn Landspítalans munu leggja niður störf. Verkfallsaðgerðir lífeindafræðinga verða á degi hverjum milli klukkan átta og tólf og aðgerðir ljósmæðra á þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum.
Áhrif þessa eru víðtæk og mun gæta þeirra í mestallri starfsemi Landspítala. Verkfallið mun til dæmis raska áhættumæðraeftirliti, skipulagningu geislameðferða nýgreindra krabbameinssjúkra, svefnrannsóknum og fleiru.
Landspítali mun eftir sem áður sinna allri bráðastarfsemi og hvetur alla sem telja sig þurfa slíka þjónustu að draga ekki að leita til spítalans.