Þeistareykjavirkjun er komin á framkvæmdastig en undirritun samninga um byggingu stöðvarhúss og veitna fór fram í dag. Gert er ráð fyrir því að framkvæmdir hefjist á næstu vikum.
Þeistareykjajörð er gömul landnámsjörð sem liggur suðaustur af Húsavík. Jörðin er nú í eigu Þingeyjarsveitar. Á blaðamannafundi sem haldinn var í dag í höfuðstöðvum Landsvirkjunar kom fram að allur undirbúningur Þeistareykjavirkjunar hefur tekið mið af sérstöðu svæðisins. Það er nær ósnortið ef frá eru taldar búsetuminjar og ummerki um brennisteinsnám á öldum áður. Í skipulagsáætlunum virkjunarinnar hafa því verið afmörkuð verndarsvæði vegna náttúru- og fornminja.
Kom jafnframt fram að við hönnun virkjunar hefur verið hugað að áhrifum á landslag og ásýnd svæðisins. Framkvæmdir hafa því verið skipulagðar á þann hátt að landmótun og frágangur fer fram samhliða uppbyggingu.
Í dag var undirritaður samningur um byggingu stöðvarhúss og veitna. Í erindi Gunnar Guðna Tómassonar, framkvæmdarstjóra framkvæmdarsviðs Landsvirkjunar kom fram að stöðvarhúsið samanstandi af þjónustubyggingu og verkstæði ásamt tveimur vélasölum. Í fyrsta áfanganum verða sett upp stöðvarhús fyrir tvær vélar en aðeins ein vél verður sett upp. Með því er Landsvirkjun að búa sig í haginn fyrir næsta áfanga að sögn Gunnars.
Á fundinum í dag kom fram að síðasta sumar var vatnsveita virkjunarinnar lögð og grafið fyrir grunni stöðvarhúss. Þá voru einnig boraðar vatnstöku-, niðurrennslis- og svelgholur, ásamt rannsóknarholum sem notaðar verða til að efla enn frekar rannsóknir á grunnvatni.
Að sögn Gunnars er kominn vegur að virkjuninni alveg frá Húsavík. Endanlegur frágangur á veginum fer fram í sumar og verður lagt bundið slitlag alla leið að stöðvarhúslóð.
Með undirritun samnings Landvirkjunar og HNS Sögu í dag er búið að skrifa undir helstu verksamninga vegna 1. áfanga virkjunarinnar. Þó er samningur um byggingareftirlit og stjórnkerfi í útboði og fara samningar um stöðvarveitur og aflspennar í útboð síðar á þessu ári.
Í febrúar undirritaði Landsvirkjun samning við Fuji Electric og Balcke Dürr um kaup á vélasamstæðu fyrir Þeistareykjavirkjun. Fjögur tilboð bárust í verkið og var tilboð Fuji Electric og Balcke Dürr fjárhagslega hagkvæmasta tilboðið. Tilboðið er 75% af kostnaðaráætlun verkkaupa.
Árið 2011 var samið við Mannvit og Verkís í sambandi við hönnun virkjunarinnar.
Kostanaður við 1. áfanga virkjunarinnar er áætlaður á bilinu 20-24 milljarðar króna. Að sögn Gunnars er af því þegar áfallinn kostnaður um þriðjungur. Hann samanstendur af ýmsum undirbúningskostnaði, rannsóknum, borunum, hönnun, vegagerð o.fl.
Í erindi sínu lagði Gunnar áherslu á að öryggismál væru alltaf í fyrirrúmi í verkefnum Landsvirkjunar. „Markmið okkar er alltaf slysalaus starfssemi,“ sagði Gunnar en mikil áhersla verður lögð á öryggismál og allir starfsmenn sem vinna í framkvæmdarsvæðinu fara í gegnumsérstök öryggisnámskeið.
„Við stefnum einnig að því að ganga sem allra best um þau svæði sem okkur er treyst fyrir,“ sagði Gunnar en áhersla er einnig lögð á umhverfismál og frágang við framkvæmdasvæði. Veruleg uppgræðsluverkefni standa til vegna framkvæmdanna, bæði vegna vegagerðar og því sem raskað verður á virkjanasvæðinu.
Landsvirkjun stundar umhverfisvöktun á virkjunarsvæðinu. Er það gert til þess að öðlast þekkingu á grunnástandi umhverfisþátta áður en rekstur virkjunar hefst.
„Við erum með viðamikla vöktun í kringum verkefnið til að vakta sem allra best áhrif á umhverfið,“ sagði Gunnar og nefndi til dæmis fuglavöktun, vöktun á lindum, gróðurreitum, hljóði og loftgæðum í því samhengi. Að sögn Gunnars verður þá hægt að sjá hver áhrif jarðvarmavirkjunarinnar verða á umhverfið.
Gunnar sagði einnig frá því að Landsvirkjun hafi lagt áherslu á samráð og upplýsingar um verkefnið til nærsamfélagsins og sagði Gunnar frá því að opnir íbúafundir hafi verið haldnir í Þingeyjarsveit og norðurþingi tvisvar á síðasta ári. Jafnframt var haldinn samráðsfundur með ferðaþjónustuaðilum á svæðinu í janúar á þessu ári og var það gert af frumkvæði Landsvirkjunar. Með framkvæmdinni er talið að aðgengi almennings og ferðamanna að náttúruperslum Þeistareykja muni aukast til muna.