Nagladekk óþörf í Reykjavík

Reykjavíkurborg telur nagladekk óþörf á götum borgarinnar.
Reykjavíkurborg telur nagladekk óþörf á götum borgarinnar. Rax / Ragnar Axelsson

Hlutfall nagladekkja á bílum á götum Reykjavíkurborgar reyndist vera 34% þegar talning var gerð miðvikudaginn 3. mars 2015 sem er ívið hærri tala en í fyrra en þá reyndust 28% ökutækja á negldum dekkjum.

Í mars 2013 voru 35% bifreiða á negldum dekkjum og 36% árið 2012.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. 

„Reykjavíkurborg telur nagladekk óþörf á götum borgarinnar enda eyða þau þeim margfalt hraðar en önnur dekk og eiga hlut í svifyks- og hávaðamengun. Styrkur svifryks hefur aðeins farið einu sinni yfir heilsuverndarmörk á árinu. Ástæðan er sú að fremur úrkomusamt hefur verið í borginni.Ökumenn eru hvattir til að skipta um hjólbarða,“ segir í tilkynningu. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert