Festust í lyftu í miðbænum

Lækjargata
Lækjargata mbl.is/Ómar

Ekki er hægt að segja að mikill erill hafi plagað Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins í nótt. Þó dró til tíðinda upp úr eitt í nótt þegar neyðarkall barst frá miðbænum þar sem fimm höfðu fest í lyftu.

Slökkviliðið brunaði rakleiðis niður í Lækjargötu til aðstoðar fólkinu, sem var frelsinu fegið. Að mati talsmanna slökkviliðsins sat fólkið fast í lyftunni í um 20 mínútur og varð ekki meint af enda margt verra til en að festast í lyftu í góðra vina hópi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert