Verkfall Starfsgreinasambandsins er hafið. Fyrsta verkfallshrinan hófst á hádegi. Verkfallið hefur gríðarleg áhrif víða, að sögn formanns SGS. Verkfallshrinan í dag stendur í tólf tíma eða til miðnættis. Ekki náðist að semja á samningafundi Starfsgreinasambandsins og Samtaka atvinnulífsins í morgun. Næsti fundur hefur verið boðaður á þriðjudag.