Evrópustofu hugsanlega lokað

Evrópustofa.
Evrópustofa. Ljósmynd/Evrópustofa

Evr­ópu­sam­bandið hef­ur eng­in áform um að bjóða út rekst­ur Evr­ópu­stofu á nýj­an leik en nú­ver­andi samn­ing­ur um rekst­ur henn­ar renn­ur út í lok ág­úst á þessu ári. Þetta kem­ur fram í svari frá stækk­un­ar­deild sam­bands­ins við fyr­ir­spurn mbl.is.

„Samn­ing­ur fra­kvæmda­stjórn­ar Evr­ópu­sam­bands­ins um rekst­ur Evr­ópu­stofu renn­ur út 31. ág­úst 2015. Eng­in áform eru um að bjóða rekst­ur henn­ar út að nýju,“ seg­ir Maja Kocij­ancic, talsmaður Johann­es­ar Hahn stækk­un­ar­stjóra sam­bands­ins.

Evr­ópu­stofa tók til starfa í upp­hafi árs 2012 í tengsl­um við um­sókn Íslands um inn­göngu í Evr­ópu­sam­bandið. Rekst­ur henn­ar var boðinn út og var í kjöl­farið samið við ís­lenska al­manna­tengsla­fyr­ir­tækið At­hygli og þýska al­manna­tengsla­fyr­ir­tækið Media Consulta. At­hygli sagði sig frá verk­efn­inu á síðasta ári og var í kjöl­farið öll­um starfs­mönn­um Evr­ópu­stofu sagt upp störf­um. Media Consulta hef­ur síðan séð al­farið um rekst­ur­inn.

Samn­ing­ur­inn um rekst­ur Evr­ópu­stofu var til tveggja ára með fjár­fram­lagi upp á allt að 1,4 millj­ón­ir evra eða rúm­lega 200 millj­ón­ir króna. Sam­kvæmt samn­ingn­um var heim­ilt að fram­lengja hann til tveggja ára. Það er fram á þetta ár. Verði ákveðið að halda rekstri Evr­ópu­stofu áfram þarf því að bjóða verk­efnið út á nýj­an leik.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert