Píratar lang stærsti flokkurinn

Ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar nýtur stuðnings 30,7% kjósenda.
Ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar nýtur stuðnings 30,7% kjósenda. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Pírat­ar njóta stuðnings 32% kjós­enda en Sjálf­stæðis­flokk­ur­inn 22% kjós­enda. Aðrir flokk­ar njóta stuðnings 11% kjós­enda eða færri, sam­kvæmt nýrri könn­un MMR. Rík­is­stjórn­in nýt­ur stuðnings 30,7% kjós­enda sem er minnsti stuðning­ur sem hef­ur mælst við nú­ver­andi rík­is­stjórn.

MMR kannaði fylgi stjórn­mála­flokka og stuðning við rík­is­stjórn­ina (stjórn Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæðis­flokks) á tíma­bil­inu 16. til 21. apríl 2015. Pírat­ar hafa bætt við sig fylgi frá því í síðustu könn­un (sem lauk 8. apríl s.l.) og mæl­ast með mest fylgi allra flokka á Íslandi.

Fram­sókn og VG með jafn mikið fylgi 

Fylgi Pírata mæld­ist nú 32,0%, borið sam­an við 27,4% í síðustu könn­un. Fylgi Sjálf­stæðis­flokks­ins mæld­ist nú 21,9%, borið sam­an við 22,9% í síðustu könn­un. Fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins mæld­ist nú 10,8%, borið sam­an við 13,1% í síðustu könn­un. Fylgi Vinstri-grænna mæld­ist nú 10,8%, borið sam­an við 9,8% í síðustu könn­un.

Fylgi Sam­fylk­ing­ar­inn­ar mæld­ist nú 10,7%, borið sam­an við 11,4% í síðustu könn­un og fylgi Bjartr­ar framtíðar mæld­ist nú 8,3%, borið sam­an við 10,3% í síðustu könn­un. Fylgi annarra flokka mæld­ist und­ir 2%. 

Jón Þór Ólafsson þingmaður Pírata - en Píratar njóta stuðnings …
Jón Þór Ólafs­son þingmaður Pírata - en Pírat­ar njóta stuðnings 32% kjós­enda. mbl.is/Ó​mar Óskars­son
mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert