Skuldir heimilanna hafa lækkað

mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Skuldir heimilanna lækka hratt og eru nú jafnar því sem þær voru 2004 sem hlutfall af vegri landsframleiðslu. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá fjármálaráðuneytinu. Þannig segir að íbúðaskuldir hafi lækkað úr 72% í 65% af VLF frá gildistöku skuldaaðgerða ríkisstjórnarinnar og áhrifa þeirra muni gæta áfram til frekari lækkunar. Þá lækki skuldir heimilanna hraðar á hér á landi en í nágrannalöndum.

„Skuldastaða heimilanna hefur batnað umtalsvert á undanförnum misserum. Ástæðan er einkum ákjósanlegar efnahagslegar aðstæður og stöðugleiki sem hefur leitt til talsverðrar kaupmáttaraukningar hjá almenningi, en kaupmáttur launa hefur aukist um 8% frá ársbyrjun 2013, sem hefur hjálpað til við að greiða niður skuldir,“ segir ennfremur. 

Þannig hafi heildarskuldir heimilanna í árslok 2014 verið um 90,5% af VLF og lækkað um 10 prósentustig á árinu 2014. Íbúðaskuldir hafi verið 68% af VLF í árslok 2014 en um mitt það ár þegar skuldalækkunarúrræði ríkisstjórnarinnar hafi tekið gildi hafi íbúðaskuldir verið 72% af VLF. Í lok febrúar á þessu ári hafi íbúðaskuldir síðan verið orðnar 65% af VLF.

„Frá áramótum er búið að greiða liðlega 51 ma. kr. vegna höfuðstólslækkunarinnar, það eru 75% af heildarfjárhæð niðurfærslunnar. Síðasti fjórðungur hennar verður greiddur inn á höfuðstól lána í ársbyrjun 2016. Við þetta bætast verulegar fjárhæðir sem heimilin geta greitt inn á húsnæðislán sín, eða sparað til fyrstu kaupa, skattfrjálst í hverjum mánuði. Aðgerða stjórnvalda til skuldalækkunar heimila skipta því sköpum við að bæta fjárhagsstöðu heimilanna og munu skuldir heimilanna lækka enn frekar þegar heildaráhrif aðgerðanna verða að fullu komin fram um mitt ár 2017,“ segir áfram.

Þá kemur fram að skuldir heimila hafi lækkað mun hraðar hér en í flestum nágrannalöndum okkar á undanförnu árum. „Um mitt ár 2009 var hlutfall skulda heimilanna 126% af VLF. Þá var aðeins Danmörk með hærra skuldahlutfall af þeim löndum sem Ísland er gjarnan borið saman við (Bretland, Danmörk, Holland, Írland, Noregur, Svíþjóð,Sviss og Kýpur). Síðan þá hefur skuldahlutfallið lækkað um 38 prósentustig og af þessum samanburðarlöndum hefur aðeins Írland náð svipuðum árangri í lækkun skulda.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert