Sannfærandi hjá Hannesi

Hannes Hlífar Stefánsson vann sannfærandi sigur á Héðni Steingrímssyni  í þriðju umferð Íslandsmótsins í skák í dag.

Miklar sviptingar voru í umferðinni og léku bæði Hjörvar Steinn Grétarsson og Jóhann Hjartarson góðum stöðum niður í tap. Hjörvar gegn Lenku Ptácníková  og Jóhann á móti Braga Þorfinnssyni. 

Björn Þorfinnsson (2407) vann Einar Hjalta Jensson (2359) örugglega. Jón L. Árnason (2499) og Henrik Danielsen (2520) gerðu jafntefli sem og Sigurður Daði Sigfússon (2319) og Guðmundur Kjartansson (2474).

Hannes er efstur með 2,5 vinning. Héðinn, Henrik og Hjörvar eru í 2.-4. sæti með 2 vinninga. Mótið er afar jafnt en 11 af 12 keppendum hafa 1-2 vinninga.

Fjórða umferð fer fram á morgun og hefst kl. 14. Þá teflir Hannes við Einar Hjalta. Aðalskák umferðarinnar verður að teljast skák Henriks og Héðins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert