Staðan yrði „algerlega fordæmalaus“

Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans.
Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans. mbl.is/Golli

Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, segir að ástandið á spítalanum sé þegar orðið afar þungbært fyrir sjúklinga og starfsfólk. Ef enn bætist í með verkföllum hjúkrunarfræðinga og stoðstétta sem sinna ræstingu, flutningum og öðrum störfum taki steininn fullkomlega úr.

„Staðan sem þá kemur upp er algerlega fordæmalaus,“ segir Páll í nýjum forstjórapistli á vef spítalans.

Hann segir að við lok þessarar viku hafi verkfall starfsfólks spítalans í fjórum félögum BHM staðið í sex vikur. „Þessi langi tími og vaxandi fjöldi sjúklinga sem ekki fær nauðsynlegar rannsóknir er öryggisógn eins og ég rakti í síðasta pistli mínum. Meðferð undanþágubeiðna hefur hins vegar verið með samræmdari hætti síðustu daga og sjúklingar látnir njóta vafans í þeim erfiðu aðstæðum sem uppi eru,“ segir hann. 

Það séu þung skref sem heilbrigðisstarfsmenn stíga þegar þeir ákveði að beita verkfallsvopninu. Það sé þó þeirra réttur og ljóst að þessu vopni sé ekki beitt af léttúð.

„Með hverjum deginum sem líður eykst álag á þá einstaklinga sem í verkfalli eru og sömuleiðis samstarfsstéttir þeirra. Þegar allt kemur til alls höfum öll sama markmið – þá bestu heilbrigðisþjónustu sem unnt er að veita þeim sem til okkar leita. Til að ná því markmiði viljum við að á Landspítala séu aðstæður og kjör okkar allra með þeim hætti að vinnustaðurinn sé eftirsóknarverður. Þannig löðum við til okkar gott fólk og höldum í það frábæra starfsfólk sem hér hefur kosið að verja starfsfkröftum sínum. Ábyrgð samningsaðila er mikil og nú ríður á að allir aðilar standi undir henni,“ segir Páll.

Verkföll hafa staðið á Landspítala í 17 vikur af þeim 29 sem liðnar eru frá upphafi verkfalls læknafélaganna í lok október á síðasta ári. Páll segir ástandið orðið með öllu óþolandi fyrir sjúklinga og starfsfólk og við þetta verði ekki unað lengur.

„Getum ekki haldið áfram með þessum hætti“

Fram kemur í pistlinum að í vikunni hafi verið haldinn reglulegur stjórnendafundur þar sem litið hafi verið til framtíðar.

„Ég velti því þar upp hvort forsvaranlegt væri að halda slíkan fund þegar eldarnir brenna. Mitt mat er að við eigum ekki val um það – ef við létum sífellt stjórnast af krísu dagsins kæmumst við ekkert áfram. Leiðin, eina færa leiðin, er að horfa á stóru myndina, hafa skýra sýn á það hvert við erum að fara, setja upp skýrt plan um það hvernig við eigum að komast þangað - og þoka svo hlutum áfram með því að gera eitthvað á hverjum degi í stóru málunum, á sama tíma og við berjumst við að slökkva alla eldana sem brenna. 

Þó verður ekki fram hjá því horft að staða dagsins er afar óvenjuleg. Við getum ekki haldið áfram með þessum hætti. Væri heilbrigðiskerfið sjúklingur væru sennilega allir sammála um að heilt yfir þyrfti sjúklingurinn á uppvinnslu og jafnvel endurhæfingu að halda. Góð heilbrigðisþjónusta myndi hins vegar fyrst ganga í það verkefni að bjarga sjúklingnum - úr andnauð verkfalla,“ segir Páll.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert