Launamunur kynjanna 18%

Þegar horft er til atvinnugreina er launamunurinn mestur í fjármála- …
Þegar horft er til atvinnugreina er launamunurinn mestur í fjármála- og vátryggingastarfsemi 37,5% og minnstur í heilbrigðis- og félagsþjónustu 7,4%. Af vef Evrópuvaktarinnar

Óleiðréttur launamunur kynjanna á Íslandi var 18,3% árið 2014 og hefur minnkað frá fyrra ári úr 19,9%. Munurinn var 19,9% á almennum vinnumarkaði en 13,2% hjá opinberum starfsmönnum, þar af var munurinn 14,1% hjá ríki og 6,7% hjá sveitarfélögum.

Lítill launamunur hjá starfsmönnum sveitarfélaga helst í hendur við litla dreifingu launa í þeim hópi og hátt hlutfall kvenna, en konur eru um 75% starfsmanna sveitarfélaga, segir á vef Hagstofu Íslands.

Þegar horft er til atvinnugreina er launamunurinn mestur í fjármála- og vátryggingastarfsemi 37,5% og minnstur í heilbrigðis- og félagsþjónustu 7,4%. Mikill launamunur í fjármála- og vátryggingastarfsemi skýrist af mikilli dreifingu launa í þeirri atvinnugrein.

Launamunur minnkar nokkuð frá fyrra ári í þeim atvinnugreinum sem opinber rekstur er mestur, það er í opinberri stjórnsýslu, fræðslustarfsemi og heilbrigðis- og félagsþjónustu. Þá dregst launamunurinn einnig nokkuð saman í framleiðslu.

Hagstofan segir að hér sé launamunur skilgreindur sem óleiðréttur þar sem ekki er tekið tillit til skýringarþátta sem geta haft áhrif á laun einstaklinga.

„Dæmi um slíka skýringarþætti eru starf, menntun, aldur, starfsaldur og fleira. Þannig er ekki tekið tillit til þess að starfsval kynjanna er oft á tíðum ólíkt. Þá ber að athuga að greidd laun fyrir yfirvinnu og fjöldi yfirvinnu¬stunda er inni í útreikningum en hver yfirvinnustund er að jafnaði dýrari en hver stund í dagvinnu.

Því meiri yfirvinna sem er inni í laununum, því hærra verður tímakaupið og því hefur ólíkt vinnutímamynstur kynjanna áhrif á niðurstöðurnar.

Karlar vinna að jafnaði meira en konur og voru vikulegar greiddar stundir fullvinnandi karla 44,1 að meðaltali árið 2014 en vikulegar greiddar stundir fullvinnandi kvenna voru 41,9. Með því að reikna óleiðréttan launamun á þennan hátt fæst ákveðin mynd af launamyndun kynjanna á vinnumarkaði sem kann að skýrast af þeim þáttum sem á undan eru taldir.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert