Framkvæmdum miðar vel við nýja hótelið á Siglufirði, Sigló Hótel, en þó næst ekki að opna það þann 1. júní nk. eins og að hafði verið stefnt.
Róbert Guðfinnsson, athafnamaður á Siglufirði, áætlar að hótelið verði opnað um miðjan júní.
Hótelherbergin verða 68 að sögn Róberts, þar af þrjár mismunandi svítur og 61 svokallað classic herbergi, sem eru að meðaltali 23 fermetrar að stærð, 4 deluxe herbergi sem eru um 29 fermetrar að stærð. Byggingin, sem er á tveimur hæðum, er alls um 3.400 fermetrar.