Lögreglan hefur lokað íslenska skálanum á Feneyjartvíæringnum. Um er að ræða listaverk svissneska listamannsins Christoph Büchel. Verkið heitir Moskan.
Innsetning Büchels gengur út á að gamalli aflagðri kaþólskri kirkju var breytt í mosku tímabundið. Verkið er framlag Íslands á myndlistarmessunni í ár.
Samkvæmt heimildum mbl.is var skálanum lokað fyrir gestum skömmu eftir opnun í morgun. Hafði lögreglan þær skýringar að ekki hefði verið farið eftir tilsettum reglum varðandi rekstur skálans. Aðstandendur hans og borgaryfirvöld í Feneyjum greinir á um hvort um raunverulega mosku eða myndlistarsýningu sé að ræða.
Aðstandendur íslenska skálans hafa fengið 60 daga til að vinna að úrbótum og til að áfrýja málinu. Yfirlýsingar er að vænta vegna málsins.
Ljósmyndir á vef blaðsins Corriere del Veneto
Opið bréf Bjargar Stefánsdóttur, forstöðumanns Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar
Frétt mbl.is: Fengu ekki leyfi frá kirkjunni