Dýralæknar innan Dýralæknafélags Íslands samþykktu á fimmtudag að bændum yrði úthlutað ákveðnum sláturdrögum og að sláturafurðir færu á markað. Hvenær geta neytendur átt von á fersku svína- og alifuglakjöti á markað? „Ég á von á því að það verði á þriðjudaginn,“ sagði Sveinn Vilberg Jónsson, framkvæmdastjóri Matfugls, í samtali við mbl.is.
Hingað til hafa svína- og kjúklingabændur þurft að setja sláturafurðir í frysti þegar þeir hafa fengið undanþágur til slátrunar. Dýralæknafélag Íslands veitir undanþágu núna til að koma í veg fyrir að framleiðendur svína- og alifuglakjöts eigi í erfiðleikum með að afla fóðurs fyrir búfénaðinn.
Sveinn Vilberg bætti við að þetta væri léttir. „Ég er allavega ánægur með þessa niðurstöðu og finnst þetta skref í rétta átt.“ Aðspurður sagðist hann ekki hafa hugmynd um hvort sjái fyrir endann á verkfalli dýralækna. „Nei, ég er ekki staddur á þeim fundum og veit því ekkert hvað gerist þar.“