Búið er að opna fyrir umferð þar sem fóðurbíll valt við Kröflu í Mýtvatnssveit í morgun. Lögreglan á Húsavík er þó enn við störf á vettvangi og er umferð því aðeins hleypt um aðra akrein vegarins. Ökumenn mega því búast við einhverjum töfum.
Frétt mbl.is: Unnið að því að losa fóðurbíl