Leiguverð enn lang hæst á Íslandi

Verð á bílaleigubílum við flugstöðvar er lang hæst hér á …
Verð á bílaleigubílum við flugstöðvar er lang hæst hér á landi miðað við aðra staði í Evrópu. Photo: Sigurður Bogi

Meðal­verð bíla­leigu­bíls við Kefla­vík­ur­flug­völl er um 150% hærra en meðal­verð við aðrar flug­stöðvar í Evr­ópu, en dag­verð fyr­ir tveggja vikna leigu er komið niður í 8.018 krón­ur hér á landi úr 9.134 krón­um í könn­un sem gerð var í lok mars. Verð á öðrum stöðum í Evr­ópu hef­ur á þess­um tíma einnig lækkað og því stend­ur verðið í Kefla­vík enn langt fram úr öðrum stöðum.

Vef­ur­inn Túristi.is hef­ur tekið sam­an þess­ar töl­ur und­an­farna mánuði, en þar má sjá á ít­ar­leg­an hátt þann verðmun sem er á milli leigu hér á landi og á öðrum stöðum. Miðað er við leigu á minnstu gerð bíla yfir sum­arið í tvær vik­ur í senn og er meðal­verð sum­ars­ins notað. Inn í verðinu er ótak­markaður akst­ur og kaskó­trygg­ing. 

Næst dýr­asti staður­inn er Osló, en þar kost­ar meðaldag­ur­inn 6.809 krón­ur. Í Genf, Basel og Zurich kost­ar dag­ur­inn 3.382 krón­ur, en við aðra flug­velli er verðið lægra og lægst í London þar sem dag­ur­inn kost­ar aðeins 1.821 krón­ur. Það þýðir að í London geta ferðalang­ar leigt bíl í rúm­lega fjóra daga fyr­ir sama verð og fyr­ir einn dag hér á landi.

Meðal­verð allra staðanna í þess­ari mæl­ingu er 3.168 krón­ur, en verðið á Íslandi er rúm­lega 150% hærra en það verð.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert